Leita í fréttum mbl.is

Fuglar

Á haustönn unnum við með fugla.  Við skrifuðum word skjal um allar gerðir fugla og áttum svo að færa það yfir í annaðhvort power point eða movie maker.  Ég valdi að gera þetta í movie maker.  Í videoinu þá fjalla ég um allar gerðir fugla og vel svo einn af hverri tegund.  Það er fjörugt lag með þessu.  Þegar ég gerði þetta lærði ég allt sem ég veit um fugla.  Endilega gefið ykkur tíma til að skoða myndbandið.

 


Ungverjaland og uppgjör

 

Okkur var sagt að fara og vinna glærur um eitthvað land í Evrópu.  Ég byrjaði á því að vinna Króatíu, en það er glæran sem að þið getið séð í færslunni fyrir neðan.  Eftir að hafa klárað að skrifa um Króatíu átti ég að velja annað land sem átti að vera í Austur-Evrópu en þá valdi ég Ungverjaland.  En ég hef farið til Ungverjalands og mig langaði að fræðast aðeins meira um landið.  Þetta hefur verið svolítið erfitt vegna þess að ég hef verið að vinna svo kallað "nörda verkefni" með nokkrum öðrum krökkum.  Þessar glærur kynna löndin frá því hvað það er stórt og að því hvað er hægt að gera þar sér til gamans þar.  Ég lærði miklu meira þegar að ég vann glærurnar um Króatíu.  Það var vegna þess að ég vissi svo mikið sem ekkert um Króatíu nema að það væri land í Evrópu sem er lengst í burtu frá Íslandi.  Ég notaðist við tvær vefsíður sem eru ferðaheimur og svo en.wikipedia.org en þaðan koma allar tölur og fullt af öðrum upplýsingum.  Ég átti líka ferðahandbók um Ungverjaland sem pabbi minn á en við fjölskyldan fórum þangað í fyrra (sumarið 2007).  Ég vona að ef einhver vilji lesa glærurnar.

 

Ægir

 

 

 


Náttúrufræði

Nú er ég búinn í náttúrufræði á þessu ári.  Nánar tiltekið í 7 bekk.  Þetta var sex daga nám.  Við unnum með bókina Mannslíkaminn.  Sú bók er ekki nógu góð.  Hún er ekki nákvæm og ég lærði ekki mikið.  Við tókum tvö próf.  Ég hef aðeins fengið einkunn úr öðru prófinu.  Í þessari bók er líkamanum lýst í máli og myndum.

Hallgrímur Pétursson/uppgjör

 

 Við gerðum glærur um æfi Hallgríms.  Þetta var unnið á miðönn í íslensku.  Þetta var allt unnið í tölvu.  Í skólanum. Þetta er í power point  Við fundum upplýsingar um hann á www.skolavefurinn.is.  Ég notaði einnig www.is.wikipedia.org og svo fórum við í heimsókn í Hallgrímskirkju.  Við gerðum samantekt  um æfi hans frá upphafi til enda.  Þar stóð allt um erfiðleika hans í lífinu, kosti hans, ljóðinn hans og fjölskildu hans. Þetta var unnið í power point.  Þar stóð allt um erfiðleika hans í lífinu, kosti hans, ljóðinn hans og fjölskildu hans.  Það var ekki mikið sem að ég vissi um Hallgrím Pétursson svo að það var mikið sem að ég lærði. við prófuðum að tala inn í á glæruruna og að gekk ekki vel og ég þurfti að taka það upp milljón sinnum í minnsta lægi.  Ég vistaði hljóðið alltaf vitlaust.  Það gekk ekki vel að láta myndbandið inn á  slideshare.net.  Ég  var ekki daginn sem þetta var gert. Ég hélt svo að ég hefði vistað þetta inn og komst svo að því að svo var ekki.  Ég þurfti einnig að gera þetta 12 sinnum.

 


Höfundur

Ægir
Ægir

Ég heiti Ægir.  Ég er 13 ára

Ég er í Ölduselsskóla og vinn þessa síðu sem skólavekefni.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband